SigenStor NEO 10kW - 48kWh pakki
Vörunúmer: Sigen-pakki-6
Tilbúnir pakkar
Hámarksorkuöryggi – þegar þú vilt geta treyst á rafmagnið
Sigenergy SigenStor NEO er ný kynslóð snjallra varaafls- og orkugeymslukerfa sem sér heimilinu fyrir rafmagni þegar rafmagn fer af dreifikerfinu.
Með 48 kWh rafhlöðupakkanum fæst hámarksorkugeymsla í einum SigenStor NEO turni. Kerfið veitir heimilinu mikið orkusjálfstæði og verulegt svigrúm til að viðhalda daglegu lífi þrátt fyrir langvarandi rafmagnsleysi.
Hefðbundið heimili sem ekki er kynt með rafmagni getur við mjög sparlega orkunotkun komist í gegnum allt að tæpa sex sólarhringa án rafmagns. Í styttra rafmagnsleysi er hægt að njóta mun meiri þæginda og nota fleiri heimilistæki án þess að ganga jafnhratt á orkuforðann.
Með sólarrafhlöðum og/eða rafstöð er hægt að byggja upp afar öflugt orkukerfi sem getur séð heimilinu fyrir rafmagni um lengri tíma án aðkomu dreifikerfisins.
Kerfið tekur sjálfkrafa við þegar rafmagn fer af og hleður rafhlöðurnar aftur þegar rafmagn kemst á.
Helstu eiginleikar:
- 10 kW þriggja fasa hybrid inverter.
- 6 × SigenStor NEO BAT 8.0 rafhlöðueiningar.
- 45,12 kWh heildarorkurýmd.
- Allt að 10 kW samfellt varaafl.
- Hámarksfjöldi rafhlöðueininga í einum turni.
- Sjálfvirk yfirfærsla yfir á varaafl – 0 ms við tilgreindar aðstæður.
- Innbyggður varaaflsbúnaður – ekki þörf á sérstökum Gateway fyrir hefðbundna uppsetningu.
- LiFePO4 rafhlöðutækni með fjölþættu öryggiskerfi.
- Snjöll orkustýring með aðstoð gervigreindar.
- Vöktun og stjórnun í gegnum mySigen snjallforritið.
- Möguleiki á tengingu sólarrafhlaðna og samhæfrar rafstöðvar.
- IP66 ryk- og vatnsvörn.
- Hljóðlátur, viftulaus rekstur.
- Einstaklega fyrirferðarlítið miðað við orkugeymslurýmd.
Tilvalin lausn fyrir þá sem vilja hámarksviðbúnað, mikið orkusjálfstæði og öflugt varaafl fyrir heimili, sveitabæi, sumarhús eða fyrirtæki.
Varaaflstími fer eftir orkunotkun, hleðslustöðu rafhlaðna og aðstæðum.
Rafmagnstenging:
Athugið að þessi pakki er eingöngu ætlaður fyrir þriggja fasa rafkerfi og hentar ekki húsnæði með einfasa rafmagnstengingu. Uppsetning skal framkvæmd af löggiltum rafverktaka.
Stærð og þyngd kerfis:
- Breidd: 80 cm
- Hæð: 218 cm
- Dýpt: 24 cm
- Þyngd: u.þ.b. 426 kg
- Gólfflötur: 0,19 m²
Miðað við gólfstandandi uppsetningu, án viðbótarrýmis vegna tenginga og loftræstingar.
Til á lager
