−30%
SigenStor NEO 10kW - 40kWh pakki  - mynd 1
Preview

SigenStor NEO 10kW - 40kWh pakki

Vörunúmer: Sigen-pakki-5

Tilbúnir pakkar

Fullt verð3.713.126 kr.2.994.456 kr. án VSKTilboðsverð2.599.188 kr.−30%2.096.120 kr. án VSK

Verulegt orkusjálfstæði og aukin þægindi í rafmagnsleysi

Sigenergy SigenStor NEO er ný kynslóð snjallra varaafls- og orkugeymslukerfa sem sér heimilinu fyrir rafmagni þegar rafmagn fer af dreifikerfinu.

Með 40 kWh rafhlöðupakkanum fæst veruleg orkugeymsla sem gerir heimilinu kleift að takast á við langvarandi rafmagnsleysi með minni skerðingu á daglegu lífi. Meira svigrúm er til að nota eldunartæki, þvottavél, tölvubúnað og önnur heimilistæki samhliða nauðsynlegri grunnnotkun.

Hefðbundið heimili sem ekki er kynt með rafmagni getur við mjög sparlega orkunotkun komist í gegnum allt að tæpa fimm sólarhringa án rafmagns.

Með viðbót sólarrafhlaðna eða rafstöðvar er hægt að lengja þann tíma enn frekar og draga verulega úr háði heimilisins við dreifikerfið.

Kerfið tekur sjálfkrafa við þegar rafmagn fer af og hleður rafhlöðurnar aftur þegar rafmagn kemst á.

Helstu eiginleikar:

  • 10 kW þriggja fasa hybrid inverter.
  • 5 × SigenStor NEO BAT 8.0 rafhlöðueiningar.
  • 37,60 kWh heildarorkurýmd.
  • Allt að 10 kW samfellt varaafl.
  • Sjálfvirk yfirfærsla yfir á varaafl – 0 ms við tilgreindar aðstæður.
  • Innbyggður varaaflsbúnaður – ekki þörf á sérstökum Gateway fyrir hefðbundna uppsetningu.
  • LiFePO4 rafhlöðutækni með fjölþættu öryggiskerfi.
  • Snjöll orkustýring með aðstoð gervigreindar.
  • Vöktun og stjórnun í gegnum mySigen snjallforritið.
  • Möguleiki á tengingu sólarrafhlaðna og samhæfrar rafstöðvar.
  • IP66 ryk- og vatnsvörn.
  • Hljóðlátur, viftulaus rekstur.
  • Hægt að stækka með einni rafhlöðueiningu til viðbótar.

Framúrskarandi kostur fyrir stærri heimili, sveitabæi, sumarhús og fyrirtæki þar sem gerðar eru miklar kröfur til orkuöryggis og rekstrarsamfellu.

Varaaflstími fer eftir orkunotkun, hleðslustöðu rafhlaðna og aðstæðum.

Rafmagnstenging:

Athugið að þessi pakki er eingöngu ætlaður fyrir þriggja fasa rafkerfi og hentar ekki húsnæði með einfasa rafmagnstengingu. Uppsetning skal framkvæmd af löggiltum rafverktaka.

Stærð og þyngd kerfis:

  • Breidd: 80 cm
  • Hæð: 188,5 cm
  • Dýpt: 24 cm
  • Þyngd: u.þ.b. 361 kg
  • Gólfflötur: 0,19 m²

Miðað við gólfstandandi uppsetningu, án viðbótarrýmis vegna tenginga og loftræstingar.

Til á lager

SigenStor NEO 10kW - 40kWh pakki
Fullt verð3.713.126 kr.2.994.456 kr. án VSKTilboðsverð2.599.188 kr.−30%2.096.120 kr. án VSK