SigenStor NEO 10kW - 32kWh pakki
Vörunúmer: Sigen-pakki-4
Tilbúnir pakkar
Mikið orkuöryggi – vel búin undir langvarandi rafmagnsleysi
Sigenergy SigenStor NEO er ný kynslóð snjallra varaafls- og orkugeymslukerfa sem sér heimilinu fyrir rafmagni þegar rafmagn fer af dreifikerfinu.
Með 32 kWh rafhlöðupakkanum fæst mikil orkugeymsla sem gefur heimilinu verulegt svigrúm til að halda áfram daglegu lífi þrátt fyrir rafmagnsleysi. Hægt er að nýta fleiri heimilistæki, elda mat, sinna heimilisstörfum og halda nauðsynlegum búnaði gangandi lengur.
Hefðbundið heimili sem ekki er kynt með rafmagni getur við mjög sparlega orkunotkun komist í gegnum allt að tæpa fjóra sólarhringa án rafmagns.
Kerfið hentar einnig sérstaklega vel með sólarrafhlöðum, þar sem hægt er að safna sólarorku yfir daginn og nýta hana þegar hennar er þörf.
Kerfið tekur sjálfkrafa við þegar rafmagn fer af og hleður rafhlöðurnar aftur þegar rafmagn kemst á.
Helstu eiginleikar:
- 10 kW þriggja fasa hybrid inverter.
- 4 × SigenStor NEO BAT 8.0 rafhlöðueiningar.
- 30,08 kWh heildarorkurýmd.
- Allt að 10 kW samfellt varaafl.
- Sjálfvirk yfirfærsla yfir á varaafl – 0 ms við tilgreindar aðstæður.
- Innbyggður varaaflsbúnaður – ekki þörf á sérstökum Gateway fyrir hefðbundna uppsetningu.
- LiFePO4 rafhlöðutækni með fjölþættu öryggiskerfi.
- Snjöll orkustýring með aðstoð gervigreindar.
- Vöktun og stjórnun í gegnum mySigen snjallforritið.
- Möguleiki á tengingu sólarrafhlaðna og samhæfrar rafstöðvar.
- IP66 ryk- og vatnsvörn.
- Hljóðlátur, viftulaus rekstur.
- Auðvelt að stækka með fleiri rafhlöðueiningum.
Öflug lausn fyrir stærri heimili, sumarhús, fyrirtæki og þá sem vilja vera vel undirbúnir fyrir langvarandi rafmagnsleysi.
Varaaflstími fer eftir orkunotkun, hleðslustöðu rafhlaðna og aðstæðum.
Rafmagnstenging:
Athugið að þessi pakki er eingöngu ætlaður fyrir þriggja fasa rafkerfi og hentar ekki húsnæði með einfasa rafmagnstengingu. Uppsetning skal framkvæmd af löggiltum rafverktaka.
Stærð og þyngd kerfis:
- Breidd: 80 cm
- Hæð: 159 cm
- Dýpt: 24 cm
- Þyngd: u.þ.b. 296 kg
- Gólfflötur: 0,19 m²
Miðað við gólfstandandi uppsetningu, án viðbótarrýmis vegna tenginga og loftræstingar.
Til á lager
