SigenStor NEO 10kW - 24kWh pakki
Vörunúmer: Sigen-pakki-3
Tilbúnir pakkar
Öflugt varaafl fyrir fjölskylduna – meira frelsi í rafmagnsleysi
Sigenergy SigenStor NEO er ný kynslóð snjallra varaafls- og orkugeymslukerfa sem sér heimilinu fyrir rafmagni þegar rafmagn fer af dreifikerfinu.
Með 24 kWh rafhlöðupakkanum fæst umtalsverð orkugeymsla sem gerir fjölskyldunni kleift að viðhalda eðlilegra heimilishaldi þótt rafmagn fari af. Minni þörf er á ströngum orkusparnaði í styttra rafmagnsleysi og meira svigrúm til að nota orkufrekari heimilistæki.
Hefðbundið heimili sem ekki er kynt með rafmagni getur við mjög sparlega orkunotkun komist í gegnum allt að tæpa þrjá sólarhringa án rafmagns. Með þremur rafhlöðueiningum er jafnframt hægt að nýta fullt 10 kW málafl invertersins við viðeigandi aðstæður.
Kerfið tekur sjálfkrafa við þegar rafmagn fer af og hleður rafhlöðurnar aftur þegar rafmagn kemst á.
Helstu eiginleikar:
- 10 kW þriggja fasa hybrid inverter.
- 3 × SigenStor NEO BAT 8.0 rafhlöðueiningar.
- 22,56 kWh heildarorkurýmd.
- Allt að 10 kW samfellt varaafl.
- Sjálfvirk yfirfærsla yfir á varaafl – 0 ms við tilgreindar aðstæður.
- Innbyggður varaaflsbúnaður – ekki þörf á sérstökum Gateway fyrir hefðbundna uppsetningu.
- LiFePO4 rafhlöðutækni með fjölþættu öryggiskerfi.
- Snjöll orkustýring með aðstoð gervigreindar.
- Vöktun og stjórnun í gegnum mySigen snjallforritið.
- Möguleiki á tengingu sólarrafhlaðna og samhæfrar rafstöðvar.
- IP66 ryk- og vatnsvörn.
- Hljóðlátur, viftulaus rekstur.
- Auðvelt að stækka með fleiri rafhlöðueiningum.
Frábær kostur fyrir fjölskylduheimili, stærri sumarhús og minni fyrirtæki þar sem mikilvægt er að viðhalda daglegri starfsemi þrátt fyrir rafmagnsleysi.
Varaaflstími fer eftir orkunotkun, hleðslustöðu rafhlaðna og aðstæðum.
Rafmagnstenging:
Athugið að þessi pakki er eingöngu ætlaður fyrir þriggja fasa rafkerfi og hentar ekki húsnæði með einfasa rafmagnstengingu. Uppsetning skal framkvæmd af löggiltum rafverktaka.
Stærð og þyngd kerfis:
- Breidd: 80 cm
- Hæð: 129,5 cm
- Dýpt: 24 cm
- Þyngd: u.þ.b. 231 kg
- Gólfflötur: 0,19 m²
Miðað við gólfstandandi uppsetningu, án viðbótarrýmis vegna tenginga og loftræstingar.
Til á lager
