SigenStor NEO 10kW - 16kWh pakki
Vörunúmer: Sigen-pakki-2
Tilbúnir pakkar
Aukið öryggi og meira svigrúm í rafmagnsleysi
Sigenergy SigenStor NEO er ný kynslóð snjallra varaafls- og orkugeymslukerfa sem sér heimilinu fyrir rafmagni þegar rafmagn fer af dreifikerfinu.
Með 16 kWh rafhlöðupakkanum fæst tvöföld orkugeymsla á við 8 kWh pakkann. Það gefur heimilinu meira svigrúm til að nota fleiri raftæki, sinna daglegum verkefnum eða komast í gegnum lengra rafmagnsleysi.
Hefðbundið heimili sem ekki er kynt með rafmagni getur við mjög sparlega orkunotkun komist í gegnum allt að tæpa tvo sólarhringa án rafmagns. Einnig er meira svigrúm til notkunar á eldunartækjum, sjónvarpi, kaffivél og öðrum heimilistækjum.
Kerfið tekur sjálfkrafa við þegar rafmagn fer af og hleður rafhlöðurnar aftur þegar rafmagn kemst á.
Helstu eiginleikar:
- 10 kW þriggja fasa hybrid inverter.
- 2 × SigenStor NEO BAT 8.0 rafhlöðueiningar.
- 15,04 kWh heildarorkurýmd.
- 9,6 kW samfellt afhleðsluafl rafhlaðna.
- Sjálfvirk yfirfærsla yfir á varaafl – 0 ms við tilgreindar aðstæður.
- Innbyggður varaaflsbúnaður – ekki þörf á sérstökum Gateway fyrir hefðbundna uppsetningu.
- LiFePO4 rafhlöðutækni með fjölþættu öryggiskerfi.
- Snjöll orkustýring með aðstoð gervigreindar.
- Vöktun og stjórnun í gegnum mySigen snjallforritið.
- Möguleiki á tengingu sólarrafhlaðna og samhæfrar rafstöðvar.
- IP66 ryk- og vatnsvörn.
- Hljóðlátur, viftulaus rekstur.
- Auðvelt að stækka með fleiri rafhlöðueiningum.
Góður alhliða kostur fyrir fjölskylduheimili og sumarhús þar sem óskað er eftir auknu öryggi og meiri þægindum í rafmagnsleysi.
Varaaflstími fer eftir orkunotkun, hleðslustöðu rafhlaðna og aðstæðum.
Rafmagnstenging:
Athugið að þessi pakki er eingöngu ætlaður fyrir þriggja fasa rafkerfi og hentar ekki húsnæði með einfasa rafmagnstengingu. Uppsetning skal framkvæmd af löggiltum rafverktaka.
Stærð og þyngd kerfis:
- Breidd: 80 cm
- Hæð: 100 cm
- Dýpt: 24 cm
- Þyngd: u.þ.b. 166 kg
- Gólfflötur: 0,19 m²
Miðað við gólfstandandi uppsetningu, án viðbótarrýmis vegna tenginga og loftræstingar.
Til á lager
