SigenStor NEO 10kW - 8kWh pakki
Vörunúmer: Sigen-pakki-1
Tilbúnir pakkar
Öflugt varaafl fyrir heimilið – allt að sólarhringur án rafmagns
Sigenergy SigenStor NEO er ný kynslóð snjallra varaafls- og orkugeymslukerfa sem sér heimilinu fyrir rafmagni þegar rafmagn fer af dreifikerfinu.
Með 8 kWh rafhlöðupakkanum getur hefðbundið heimili sem ekki er kynt með rafmagni komist í gegnum allt að tæpan sólarhring í rafmagnsleysi, sé orkunotkun haldið í lágmarki. Hægt er að halda ísskáp, frystikistu, lýsingu, netbúnaði, öryggiskerfi og öðrum nauðsynlegum raftækjum gangandi.
Kerfið tekur sjálfkrafa við þegar rafmagn fer af og hleður rafhlöðuna aftur þegar rafmagn kemst á.
Helstu eiginleikar:
- 10 kW þriggja fasa hybrid inverter.
- 1 × SigenStor NEO BAT 8.0 rafhlöðueining.
- 7,52 kWh heildarorkurýmd.
- 4,8 kW samfellt afhleðsluafl rafhlöðu.
- Sjálfvirk yfirfærsla yfir á varaafl – 0 ms við tilgreindar aðstæður.
- Innbyggður varaaflsbúnaður – ekki þörf á sérstökum Gateway fyrir hefðbundna uppsetningu.
- LiFePO4 rafhlöðutækni með fjölþættu öryggiskerfi.
- Snjöll orkustýring með aðstoð gervigreindar.
- Vöktun og stjórnun í gegnum mySigen snjallforritið.
- Möguleiki á tengingu sólarrafhlaðna og samhæfrar rafstöðvar.
- IP66 ryk- og vatnsvörn.
- Hljóðlátur, viftulaus rekstur.
- Auðvelt að stækka með fleiri rafhlöðueiningum.
Frábær kostur fyrir heimili og sumarhús þar sem markmiðið er að tryggja rafmagn fyrir nauðsynlegan búnað þegar rafmagnsleysi verður.
Varaaflstími fer eftir orkunotkun, hleðslustöðu rafhlöðu og aðstæðum.
Rafmagnstenging:
Athugið að þessi pakki er eingöngu ætlaður fyrir þriggja fasa rafkerfi og hentar ekki húsnæði með einfasa rafmagnstengingu. Uppsetning skal framkvæmd af löggiltum rafverktaka.
Stærð og þyngd kerfis:
- Breidd: 80 cm
- Hæð: 70,5 cm
- Dýpt: 24 cm
- Þyngd: u.þ.b. 101 kg
- Gólfflötur: 0,19 m²
Miðað við gólfstandandi uppsetningu, án viðbótarrýmis vegna tenginga og loftræstingar.
Til á lager
