MultiPlus 48/20k/250-100 230V
Vörunúmer: PMC483200400
Sambyggð hleðslutæki/áriðlar
697.995 kr.562.899 kr. án VSK
Victron MultiPlus 48/20k/250-100 230V – 20 kW inverter og hleðslutæki
Nýr og öflugur 20 kW MultiPlus inverter frá Victron Energy, hannaður fyrir stærri varaafls-, rafhlöðu- og sjálfstæð orkukerfi þar sem miklar kröfur eru gerðar um afköst og rekstraröryggi.
MultiPlus sameinar hreinan sínusbylgjuinverter, öflugt 250 A rafhlöðuhleðslutæki og 100 A sjálfvirkan yfirfærslurofa í einni einingu. Hann styður PowerAssist og PowerControl, sem gera kleift að nýta rafhlöður til að mæta álagstoppum og takmarka álag á raforkunet eða rafstöð.
Helstu eiginleikar
- 20.000 W samfellt útgangsafl við 25°C
- 25.000 W hámarksafl í allt að 1 mínútu
- 250 A innbyggt rafhlöðuhleðslutæki
- 100 A sjálfvirkur yfirfærslurofi
- 96% hámarksnýtni
- 48 V DC / 230 V AC, 50 Hz
- PowerAssist og PowerControl
- Styður samhliða rekstur og þriggja fasa uppsetningar
- VE.Bus samskipti og fjareftirlit í gegnum Victron GX og VRM
- Mál: 616 × 422 × 357 mm
- Þyngd: 80 kg
MultiPlus 20 kW hentar sérstaklega vel fyrir atvinnuhúsnæði, landbúnað, stærri heimili, varaafl og off-grid orkukerfi.
Til á lager
